Zuilma Gabriela Sigurðardóttir, PhD
Klínískur atferlisfræðingur
📍 Reykjavík — Höfuðborgarsvæði
Um
Prófessor í sálfræði á sviði atferlisgreiningar, HÍ, löggiltur sálfræðingur á Íslandi, klíniskur atferlisfræðingur að mennt með vottun frá SATÍS
Hef talsverða reynslu af íhlutun í hegðunarvanda fólks, t.d. ofbeldi í nánum tengslum, ill meðferð barna og fjölskylduofbeldi. Hef einnig unnið með íhlutun fyrir og með fólki með ýmsa fötlun, t.d. fólki með málstol eftir heilablóðfalli, þroskahömlun, geðröskunum, blindu. Hef einnig mikla reynslu af íhlutun í skólafærni grunnskólabarna og námsvanda, t.d. í lestri og stærðfræði. Hef mikla reynslu af því að vinna með hjónum og fjölskyldum í samskiptavanda. Hef mikla reynslu af fræðslu fyrir foreldra um uppeldistækni sem eykur aðlögun barna og gæði fjölskyldulífs. Hef innleidd íhlutun í heilum stofnunum, t.d. grunnskólum og deildum í einkafyrirtækjum. Ég tek að mér handleiðslu fyrir atferlisfræðinga í námi og starfi.
Menntun og gráður
| Gráða | Stofnun | Land | Ár |
|---|---|---|---|
| Annað | Háskóli Íslands | Ísland | 1985 |
| MA | Southern Illinois University - Carbondale | Bandaríkin | 1989 |
| PhD | Northeastern University - Boston | Bandaríkin | 1992 |
© 2026 SATÍS Iceland. Öll réttindi áskilin.
Hönnun á kerfi: Skjala ehf.